Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Sverrir Ingi Ingason og félagar í Midtjylland eru komnir á topp dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á FC Kaupmannahöfn, ríkjandi meisturum. Fótbolti 16. maí 2024 20:15
Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Kolbeinn Þórðarson lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar í 2-2 jafntefli á útivelli gegn Sirius þegar liðin mættust í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Fótbolti 16. maí 2024 19:30
Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Viðar Ari Jónsson skoraði eitt af sjö mörkum HamKam í 7-1 útisigri liðsins á Sarpsborg 08 í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Þá lagði hann upp eitt til viðbótar. Fótbolti 16. maí 2024 18:26
Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði sigurmark Silkeborg þegar liðið lagði AGF í dönsku efstu deild karla í knattspyrnu. Fótbolti 16. maí 2024 18:05
UEFA setur pressu á City Football Group UEFA hefur sett City Football Group tvo valkosti fyrir næsta tímabil. Ef ekki verður farið eftir fyrirmælum fyrir 3. júní verður annað hvort Manchester City eða Girona lækkað um tign og látið spila í Evrópudeildinni á næsta ári. Fótbolti 16. maí 2024 17:15
Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Armin Gigović hefur verið fyrirliði 21 árs landsliðs Svía í fótbolta en spilar aldrei fyrir A-landsliðið. Hann ákvað að skipta um landslið. Fótbolti 16. maí 2024 16:46
Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Indverska knattspynugoðsögnin og þriðji markahæsti landsliðsmaður heims, Sunil Chhetri, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann mun leika sinn síðasta landsleik gegn Kúveit, 6. júní næstkomandi. Fótbolti 16. maí 2024 14:30
Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Blað verður brotið í sögu deildarkeppni karla í fótbolta í Danmörku á morgun þegar að Fabiana Alcalá verður fyrsta konan til þess að stýra karlaliði. Fabiana stýrir AB gegn Nykobing á morgun í 2.deildinni en Jóhannes Karl Guðjónsson var í gær ráðinn AB. Fótbolti 16. maí 2024 12:05
Allegri afklæddist á hliðarlínunni Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, byrjaði að afklæðast á hliðarlínunni í úrslitaleik ítölsku bikarkeppninnar í gær. Fótbolti 16. maí 2024 11:30
Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, heimilaði meðlimi framkvæmdaráðs sambandsins að vera á meðal gesta á ráðstefnu sambandsins sem stendur yfir í Bangkok þrátt fyrir að sá sitji í fangelsi. Fótbolti 16. maí 2024 10:30
„Þetta var ótrúlega erfitt“ John Andrews, þjálfari Víkings, var glaðbeittur á svip eftir 1-0 baráttusigur á liði Þróttar á Avis-vellinum í Laugardal í kvöld. Þetta er annar sigur Víkinga á tímabilinu en fimm umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Fótbolti 15. maí 2024 21:15
Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn Dusan Vlahovic skoraði eina mark leiksins er Juventus tryggði sér ítalska bikarmeistaratitilinn með 1-0 sigri gegn Atalanta í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 21:09
KA sneri taflinu við í seinni hálfleik KA er á leið í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 endurkomusigur gegn Vestra í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 20:00
Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Fimm Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 15. maí 2024 19:24
Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark Lilleström er liðið vann góðan 3-2 sigur gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 15. maí 2024 17:51
Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Félög í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu munu á næsta ársfundi deildarinnar kjósa um það hvort notkun myndbandsdómgæslu, VAR, verði hætt frá og með næsta tímabili. Fótbolti 15. maí 2024 17:17
Gæti haldið áfram eftir allt saman Fregnir frá Þýskalandi herma að líklegast sé að Thomas Tuchel haldi kyrru fyrir hjá Bayern München og verði áfram þjálfari liðsins. Löngu er ákveðið að hann yfirgefi félagið í sumar. Fótbolti 15. maí 2024 16:01
FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA mun skipa stýrihóp til að rannsaka helstu kosti og galla þess að spila deildarleiki erlendis. Relevant Sports, skipuleggjandi íþróttaviðburða í Bandaríkjunum, er talinn mikill áhrifavaldur á ákvarðanatöku sambandsins. Fótbolti 15. maí 2024 15:29
Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt opnunartíma félagaskiptagluggans fyrir næsta tímabil. Lokadagur sumargluggans verður fyrr en vanalega en lokadagur vetrargluggans síðar en vanalega. Enski boltinn 15. maí 2024 15:00
Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða FIFA hefur sett á laggirnar heimsmeistaramót félagsliða kvenna í fótbolta. Mótið mun samanstanda af 16 félagsliðum og fara fram á fjögurra fresti, í fyrsta sinn í ársbyrjun 2026. Fótbolti 15. maí 2024 14:31
Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Kylian Mbappé og forseti Paris Saint-Germain, Nasser Al-Khelaifi, rifust heiftarlega fyrir leik frönsku meistaranna gegn Toulouse um helgina. Fótbolti 15. maí 2024 14:00
Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Jóhannes Karl Guðjónsson hefur óskað eftir því að láta störfum sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Hann mun taka við þjálfun Akademisk Boldklub (AB), sem spilar í þriðju efstu deild Danmerkur. Fótbolti 15. maí 2024 12:13
FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Forkólfar alþjóðaknattspyrnunnar eru nú teknir til að vinda ofan af ýmsum umbótum sem áttu að bæta stjórnarhætti í kjölfar umfangsmikil spillingarmáls sem skók hana fyrir áratug. Bandarísk yfirvöld kannast ekki við að hafa lagt blessun sína yfir umbæturnar. Erlent 15. maí 2024 11:10
Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Óvandvirkni við samningagerð virðist hafa reynst KA dýrkeypt í dómsmáli liðsins og Arnars Grétarssonar, fyrrum þjálfara liðsins, ef rýnt er í dóm Héraðsdóms. KA var í gær dæmt til að greiða Arnari tæpar níu milljónir í vangoldin laun vegna samningsákvæðis sem sneri að bónusgreiðslum. Íslenski boltinn 15. maí 2024 11:05
Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Þrátt fyrir orðróma þess efnis að Bruno Fernandes væri að hugsa sér til hreyfings þá hafi hann ákveðið að vera áfram í herbúðum Manchester United eftir að funda nýverið með félaginu. Enski boltinn 15. maí 2024 07:00
Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum „Það eru miklar tilfinningar til staðar í svona leikjum og því getur maður oft ekki spilað sinn besta leik,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, eftir 2-0 sigur liðsins á Tottenham Hotspur í kvöld. Sá sigur skilar liðinu á topp deildarinnar þegar ein umferð er eftir af tímabilinu. Enski boltinn 14. maí 2024 22:31
Spánarmeistarar Real skoruðu fimm Það var ekki að sjá að Real Madríd hafi gleymt sér í að fagna Spánarmeistaratitlinum þegar liðið tók á móti Alavés. Meistararnir unnu gríðarlega sannfærandi 5-0 sigur. Fótbolti 14. maí 2024 21:46
„Þegar við skorum að þá er gaman“ „Ég er ægilega ánægður, mér fannst liðið bara flott í þessum leik á móti erfiðu liði,“ sagði Jóhann Kristinn þjálfari Þór/KA eftir 4-0 sigur á Keflavík á Akureyri í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 14. maí 2024 21:30
„Þetta var eins og handboltaleikur“ FH tapaði í kvöld gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ. Eftir ótrúlegar upphafsmínútur þar sem staðan var 4-1 eftir korter fyrir heimakonum þá bitu Hafnfirðingar frá sér í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn niður í eitt mark. Lokatölur 4-3. Íslenski boltinn 14. maí 2024 21:15
Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Englandsmeistarar Manchester City verða á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar lokaumferð deildarinnar fer fram þökk sé 2-0 sigri liðsins á Tottenham Hotspur í kvöld. Enski boltinn 14. maí 2024 21:05